Eða kannski bara: Sweet home Alabama.....Er með þetta
lag á heilanum, Rannver frændi er einmitt að fara til Alabama i nám
og fótboltaspilerí, flýgur út í dag. Gaman að því.
Fannar Þór, litli bró, er tvítugur í dag, til hamingju með
daginn minn kæri!
Annars flýgur tíminn frá mér hérna á Íslandi, hef náð að hitta
nokkuð marga, tveir saumaklúbbar voru á dagskránni, bæði skvísurnar
frá KHÍ og svo pæjurnar úr menntó. Hef verið í Rvk undanfarna daga
og gisti hjá Júlíu minni og henni Fanneyju Sif. Fór í klippingu og
bíó og hef heimsótt ættingja. Dugleg.
Er komin í Borgarnesið núna, en fer aftur í bæinn á morgun,
nú á menninganótt! Læt mig ekki vanta á svona stóratburði (sbr.
hestamótið... 
. Nú, svo er hún Alda mín væntanleg til
landsins í kvöld, vonast eftir að hitta hana annað kvöld.
Finnur, er búin að fá kjötsúpu og pönnsur hjá ömmu, ligga ligga
lái...namm... (varð að koma þessu að..)
Annars líður tíminn allt of hratt og ég fer út á
þriðjudagsmorgun. Skólinn byrjar einmitt á þriðjudaginn, þannig að
ég verð að fara að setja í lærigírinn. Verð búin með námið aður en
ég veit af.
Jæja, gara gó.